Ég skrifa hér, fimmta mai 2005 til að færa ykkur sorgar fréttir.
Hin ástkæra Lovísa Rut, einnig þekkt sem bara Lovisa, lést í morgun klukkan rúmlega 5 þegar hún ók út af Breiðholtsbrautinni við hesthúsin og velti bílnum.

Ég veit ekki hvað ég get sagt, mér líður svo illa og er ekki alveg að átta mig á þessu til fulls, en þetta er víst staðreynd og eitthvað sem við verðum öll að lifa við. En ég get sagt að Lovísu verður sárt saknað af öllum í hinu íslenska Quake samfélagi, hún var frábær manneskja og öllum líkaði vel við hana.

Ég vil votta öllum þeim sem þekktu hana samúð mína og ég vona að þetta verði ekki of mikið áfall, því það er vont að missa svona frábæra manneskju, ég veit að hún var elskuð af mörgum og hún átti marga vini. Hver myndi svosem ekki vilja vera vinur hennar. Þegar ég skrifa þetta sit ég hérna með hennar nánustu vinum sem hana elskuðu sem heitast. Ég(Theory), Kolla(Kolla), Hafsteinn(Haddi), Nonni(Tranz) og Gumma(BliZter).

Við vildum bara láta ykkur vita af þessum hræðilega atburði, hennar verður sárt saknað en þetta er kannski bara eitthvað sem gerist sem við verðum að lifa með.

C'est la vie?, well I wish it wasnt.