Jæja..nú er maður kominn heim eftir að hafa verið niðri í Smára í alla nótt við að leggja netið fyrir ykkur og þetta leit bara mjög vel út þegar að ég fór. Ég vil bara minna alla á að taka með sér allt sem þarf og vera með tölvur í góðu lagi því ekki nennum við að standa í þursahjálp allan morgundaginn.

Sjáumst á morgun með góða skapið og allt það og munið að taka með sér skráningargjaldið í reiðufé (ekki debetkort).
JReykdal