Fyrir mistök var riðlum í 1on1 póstað í dag, þótt grunnurinn sem lá að baki þeim hefði laskast verulega. Drátturinn var _ekki_ nothæfur, en einhverra hluta vegna er fólk afar tregt til að meðtaka það að RIÐLAR Í 1ON1 ERU EKKI KOMNIR UPP. Frétt þess efnis stóð hér í ca. 90 sek í dag, áður en ég tók hana niður og áréttaði svona 10x á #quake.is að þetta væri EKKI drátturinn.

Téður útdráttur átti að standa, en laskaðist “beyond repair”. Vonandi verður hægt að birta rétta riðla á morgun.

ps. látið okkur um fréttaflutning og tilkynningar. Scoop sökka :P

Kveðja,
Smegma