Eftir að 1.27g var keyrt inn á Skjálftaþjónana ákvað ég að nýta þá ágætu client sampling möguleika sem pmove_fixed 1 býður upp á. Þetta þýddi að hægt var að stjórna því server-side hvort clientar nýttu sér 125 hz sampling eður ei. Fannst mér þetta framan af hið besta mál, þar sem þetta jafnar eilítið út FPS-advantage, og tryggir að allir sitji við sama borð hvað stökk varðar. Sú skoðun hefur nú talsvert breyst.

Þörfin fyrir 125 hz sampling rate er merkilegt nokk minni í 1.27 - undirritaður tapaði t.d. um 15-20 fps á plástrinum, en leikurinn er samt ekki verri að neinu leyti. Hann er jafnsmooth, og ég stekk _lengra_ en með 1.17, þótt benchmarks sýni nú lægri FPS tölu. Mjög margir hafa sömu sögu að segja.

Fleira kemur til. Í 1v1, og 2v2 er pmove_fixed 1 nokkuð snjallt. Í 4v4, CTF og 10 manna CA er það það ekki. Hjá flestum leikmönnum (einkum þeim sem eru á slakari vélum og/eða tengingum) framkallar pmove_fixed 1 hökt og undarlegar hreyfingar. Margir vilja og meina að þetta hafi undarleg áhrif á mið (sjálfur hef ég hitt andstæðing ítrekað í prófun þar sem hann hleypur hornrétt á sjónlínu mína - með að miða eilítið fyrir AFTAN hann).

Um “sósíalískt” gildi má endalaust deila. Er rétt að þeir sem hafi gott hardware græði eitthvað á því umfram þægilegri miðun, minna FTP drop í fjölmenni o.s.frv? Er að sama skapi eðlilegt að reyna að minnka yfirburði þeirra sem lagt hafa stórfé í framerateið sitt góða? Er auka hangtime eftir jumppads/rocket jumps til að dýpka raillistina? KVAR ??? Afstöðu tek ég ekki til þessara atriða, en meðan pmove_fixed er ekki gallalausara en raun ber vitni tel ég að við séum betur stödd án þess. Prófið að bera saman 10 manna CTF/CA með og án pmove_fixed - mæli með CTF á Q3WCTF1 til prófunar. (/callvote pmove 0/1).

Látið ykkar álit endilega í ljós, til þess eru jú followuppin hugsuð. En heyri ég ekki verulega sterk rök með áframhaldandi pmove_fixed 1 mun ég breyta því á allra næstu dögum. Skoðanakönnun ætti e.t.v. við, og getur gefið hjálplegar vísbendingar. Vilji leikmanna skiptir meira máli en flest annað. Þó vísa ég t.d. til sv_pure rimmunnar fyrir S1 | 2000. Sér einhver þeirri ákvörðun nú?

ps. Thurs2k þjónarnir nota pmove_fixed 0.

Skjálftakveðja,
Jolli