Jæja…nú eru jólin að nálgast og margir fara að gæða sér að Macintosh nammi en svo er líka til fólk sem notar Macintosh allt árið og þeir vilja stundum spila leiki.

<a href="http://www.hugi.is/files/games/demos/tademobeta.bin“>Hérna</a> er að finna Team Arena demó fyrir Mac (121MB) og er þar að finna eitt borð úr TA eins og PC útgáfan.

Vert er að geta þess að það þarf ATi rage 128 í að minnsta til að spila þetta.

Og btw…nú munu nokkrir stökkva upp og segja ”foj makkar!" en ég verð að segja það að ég sá eina af þessum rafdrifnu fiskabúrum (iMac) keyra Q3 alveg sómasamlega á síðasta skjálfta og mun því ekki gera mikið (bara smá) grín að aflinu í þeim (þótt ég geti fundið gazillion hluti að þeim annars).

Njótið vel.
JReykdal