Við mjökumst upp um eitt sæti á milli mánaða, erum komin í það 16. núna.
Ég er alveg frábærlega ánægð með það, og mig langar að þakka ykkur hundahugarar fyrir að hafa tekið ykkur á í sambandi við skítkast hérna, mér finnst það hafa minnkað mjög mikið, endilega höldum áfram á réttri braut.

Endilega haldið áfram að senda inn myndir, greinar og korka, en ekki verður tekið við könnunum fyrr en í endann ágúst vegna langs biðlista.
Þeir sem senda inn kannanir hafið það í huga að kannanir eins og “hvort áttu hund eða tík”, “bítur hundurinn þinn” “áttu marga hunda” og “áttu stórann eða lítinn hund” eru afþakkaðar, þær hafa birst hér mörgum sinnum, endilega skoðið þær kannanir sem hafa verið sendar inn ef þið eruð ekki viss á því hvort að könnunin sem þið eruð að senda inn hafi birst síðasta árið.

Með þessu er ekki meiningin að vera leiðinleg, en það bara koma inn svo rosalega margar lélegar kannanir á hverjum degi, sem og kannanir sem hafa birst nýlega.

Bestu kveðjur til ykkar allra, og njótið þess sem er eftir af sumrinu.
Zaluki.
———————————————–