Crúsý Hérna getið þið séð rottweilerinn okkar í fötum, sumir telja þetta grimmd að gera hundinum þetta en hún bíður alltaf spennt eftir því að vera klædd í föt þegar litla systir mín er að leika sér í mömmó. Tekur þátt í leiknum eins og hún sé persóna en ekki hundur, liggur í fanginu á manni og drekkur úr pela, leggst svo upp í dúkkurúm og fleira. Ég er farin að hallast að því að þetta sé manneskja í hundslíki;)