Ég var að kaupa mér einn lítinn chihuahua (veit ekki hvort það sé skrifað svona) og ég var að pæla hvort að einhver gæti gefið mér smá leiðbeiningar á því hvernig sé best að ala hann upp (hann heitir Steini). Ég fer með hann alveg 3-4 sinnum út á dag en hann pissar bara og kúkar inni, en ekki á blaðið sitt. Hann hunsar mig og manninn minn gjörsamlega og gerir allt sem hann má ekki. Kannski er þetta bara fljótfærni í mér þar sem ég er bara búin að eiga hann í 5 daga. En samt endilega komið mér einhverjar hugmyndir. Kveðja Taxi4you.