Þetta er meira óargardýrið sem ég fékk :> Blanda af border collie og english springer spaniel, hún er hvít og svört nema með smá brúnu í andlitinu og á löppunum, eins og titilinn gefur til kynnna heitir hún elding (Er með hvíta rönd á hausnum sem er eins og elding í laginu:) og svona svartan blett á miðjum maganum :)

Finnst nú ótrúlegt hvað hún hefur verið góð með að gera sitt ekki útum allt hús, hefur einungis pissað einu sinni inni en farið út og gert sitt um 4-5 sinnum síðan bara í gær, og auðvitað er henni klappað og alveg hrósað í hásterkt og gefin pulsa fyrir hvert skipti sem hún gerir eitthvað rétt, er dálítið fyrir að naga sokkana hjá manni og tærnar, er að reyna venja hana að því að naga fólk með að vera bara fljótur að gefa henni bein, fer síðan á hundanámskeið núna í ókt held ég vonandi þannig þetta verður svaka fjör hér á bæ ;) Kem með myndir af henni eins fljótt og ég get