Halló.

Ég er ung kona í Kópavogi sem bý við kjöraðstæður fyrir hund (eins góðar og borgin býður upp á). Hef stóran afgirtan garð í rólegu hverfi og bý á jarðhæð í tvíbýli. Dagvist er hinu megin við götuna (amma og afi) svo að hann/hún yrði aldrei ein heima. Ef þú átt lítinn/ meðalstóran hund sem vantar gott heimili til frambúðar sendu mér þá póst á netfangið budgie@islandia.is. Mig langar voðalega mikið í Cav. King Charles Span. eða Shih tzu en allar tegundir koma til greina, hreinræktað eða blendingur. Ég er tilbúin til að greiða sanngjarnt verð fyrir. Hvolpur eða ungur hundur væri æskilegur en ef einhvern vantar sárlega heimili er aldur kannski ekki fyrirstaða.