Hún móðir mín var í veislu þar sem gestgjafarnir áttu hund. Þá ættlaði mamma mín að vera svakalega gáfuleg og þykjast vera fróð um hunda og sagði:
-Er þetta ekki svona Trivial Purshut?
Hún er nú aðeins að rugla þarna og meint sennilega Golden Terrier, en við í þessari ætt erum þekkt fyrir að bulla og rugla endalaust.
Allir hreinlega sprukku úr hlátri og ekki bætti á það þegar en kona svaraði:
-Nei, þetta er Matador!(Labrador)

Svona er auðvelt að rugla saman borðspilum og hundategundum :c)