Hæhæ Hugarar

Ég keypti búr fyrir tíkina mína til að hafa í bínum öryggis okkar beggja vegna. Vandamálið er að hún verður svo hrædd þegar ég set hana inn í það að ég get bara engan vegin notað það.

Þetta er mjög fínt búr sem hægt er að taka í sundur á einfaldan hátt. Það er ca 85 cm á dýpt, 70 cm á hæð og 50 cm á breidd. Það er á hjólum þannig að það er hægt að draga það á eftir sér eða ýta á undan sér.

Þetta er farið að vera svolítið fyrir mér þar sem ég bý í blokk og hef ekki pláss fyrir þetta í geymslunni.

Þessvegna er þetta búr nú til sölu á 8.000 krónur. (Keypti það notað á 10.000 á sínum tíma og hef ekkert getað notað það)

Myndir af búrinu eru á <a href="http://bjornjul.simnet.is/hundabur/">http://bjornjul.simnet.is/hundabur/</a>

Ef þú hefur áhuga þá er hægt að ná í mig í síma 8967463

Sjáumst svo í hundagöngunni.
kv
bjornjul<br><br>bjornjul[P1mP]
kv,