Ég er með 2 hunda sem klóra hundabælin upp, svo er annar hvolpur og nagar eitthvað líka. Er einhvers staðar hægt að fá hundabæli úr þykku segli eða öðru sterku efni? Ég sé bara einhver ósköp fín og dúlluleg hundabæli í búðunum, hundarnir mínir ætu þau í morgunmat!