Þarf fólk sem ætlar að fá sér Rottweiler hund ekki að uppfylla ákveðin skilyrði eins og að vera með hreint sakavottorð og hafa reynslu af uppeldi hunda?
Málið að hérna býr einn Rottweiler í götunni og það er eitthver krimmi sem á hann, hundrurinn geltir út í eitt við minnstu tilefni og virðist grimmur. Þótt ég viti að Rottweiler hundar séu bestu grey ef þeir eru rétt upp aldir þá er ég viss um það að þessi hundur sé ekki slíkur og ef hann sleppur gæti orðið slys á fólki enda eru þetta engin lömb að leika við.
Hvað er til ráða, hvert get ég leitað til að tilkynna hann?