Fyrirlestur um þjálfun og atferli hunda til styrktar Dýrahjálpar Íslands 30. mars

Þriðjudagskvöldið 30.mars munu dýralæknarnir Freyja Kristinsdóttir og Sif Traustadóttir halda fyrirlestur um hundaþjálfun og hundaatferli.
Freyja Kristinsdóttir, dýralæknir og hundaþjálfari, mun fjalla um mismunandi aðferðir í hundaþjálfun, þar á meðal klikkerþjálfun.
Sif Trausadóttir, dýralæknir og dýraatferlisfræðingur, mun fjalla um atferlisvandamál hjá hundum.

Fyrirlesturinn verður haldinn klukkan 20:00, þann 30.mars í Icepharma, Lynghálsi 13, 110 Reykjavík (gengið er inn um aðalinngang). Fyrirlestrinum er lokið um kl. 21:30 og verður þá tími til að svara spurningum. Aðgangseyrir er 1000 kr (ath. eingöngu tekið við staðgreiðslu, þ.e. engin kort) og rennur ágóðinn til styrktar Dýrahjálpar Íslands.