Hversu ömurlegt það er er að missa hundinn sinn :(
Ég hef alist upp með dýrum og vön því að þau deyja og allt það en þessi hundur sem ég átti var einstakur en við þurftum að láta lóga honum útaf veikindum hans.
Ég er búin að grenja í 3 daga og ég er ekki að komast yfir þennan missir.
Ég hef aldrei tekið dauða gæludýrs svona nærri mér og ég veit bara ekkert hvað ég á að gera..
Ég veit að hann var bara dýr en fyrir mér var hann miklu meira.. hann var vinur minn. Einver sem gat látið mig brosa með því að vera kjánalegur.
jæja.. þurfti bara að væla aðeins