Þarf því miður að láta elsku hundinn minn fara af óviðráðanlegum ástæðum. Hann er hreinræktaður Amerískur cocker spaniel, súkkulaði brúnn, húsvanur, vel þjálfaður, barngóður og yndislegur í alla staði. Hann er með ættbók frá HRFÍ og búinn að fá allar sprautur. Hann er 11 mánaða og selst fyrir 60 þúsund. Óska eftir góðu fólki og heimili til að taka hann að sér.

Hægt er að fá sendar myndir, áhugasamir sendið mér skilaboð.