Ah, getið þið hvað elskan mín gerði áðan?
Ég ætlaði að fara með hana út að pissa, áður en ég færi að sofa, en svo tók ég eftir því að hún var með bein í kjaftinum. Pabbi gefur henni stundum svona hnútabein, svo að ég reyni að fá hana til að gefa mér (Takk!), en hún gegnir ekki (beinið HENNAR!), svo að ég gafst bara upp og sagði við hana að hún ætti þá að koma með það inn aftur. Hún snýr sér við og setur upp þetta líka gleiða glott! (ég sver það, hún glotti), fer montin niður stigann, ber höfuðið hátt og hleypur út með beinið í kjaftinum, mígur með það í kjaftinum og kemur aftur inn með það í kjaftinum, rosastolt.
–Skemmtileg saga bara til upplífgunar ^^