Ég verið að kynna mér þessa tegund eftir að ég sá mynd af einum slíkum. Ég hugsadi með mér að þetta væri æðislega sætur hundur og leitaði því að allskonar efni um tegundina á netinu og í hundabókum. Ég hef komist að því að persónuleiki þessara hunda á mjög vel við mig og minn lífstíl, og mig langar ROSALEGA að fá mér Westie hund. Málið er að ég veit ekki um neinn hér á landi sem á svona hunda, en eftir því sem ég best veit eru þeir heldur ekki ræktaðir hér.

Þess vegna langaði mig að spyrja ykkur hugara hvort að þið eigið eða vitið um einhvern sem á svona hund, og þá hvort þið vitið hvaðan hann hefur verið fenginn.

Hér má sjá mynd af Westie hundi http://www.pets.ca/breedprofiles/a/westhighland/w4.jpg


Takk æðislega:)
(='.'=)