Ég veit að þetta á nú sennilega ekki við hérna, en það eru þó nokkrir hérna sem eiga ketti líka, þannig að ég læt vaða.
Mér áskotnaðist kettlingur, sem ég bjargaði frá lógun. Ég hringdi í dýralækninn áðan sem tjáði mér það að það væri kettlingnum sem er 3-4 vikna fyrir bestu að komast til læðu sem myndi etv. ala hann upp og kenna kattasiði.
Ég kann svo voðalega lítið á kisur, og get eiginlega ekki hugsað um hana, en ég gat samt ekki hugsað mér að láta lóga henni. Er einhver þarna sem getur gefið henni séns á góðu lífi ?<br><br>——————————
“Work like you don't need the money, love like you've never been hurt and dance like no one else is watching”
———————————————–