Litlu 4 mánaða tíkinni minni var stolið með bíl um 9 leitið í kvöld. Ég get ekki sofið af áhyggjum. Hún er svöng, þyrst og inní búri. Ég veit ekki hvað ég á að gera. Löggann er ekki að gera neitt auðvitað og getur lítið gert.

Ég er bara að drepast úr hræðslu um að við fáum hana aldrei aftur og ef að hún finnist kannski að þá sé hún bara orðin brjáluð og þá getum við ekki haft hana.

Ég fórdæmi illa meðferð á dýrum og vil drepa fólk sem gerir slíkt og svo núna þarf ég að vita af yndinu mínu lokaða inni í búri í guð veit hvað langan tíma.

Ég vona að þjófurinn hafi bara sleppt henni, eflaust meiri líkur á að hún lifi og meiri líkur á að hún finnist.

Ég bara finn svo til með henni, þetta fór svo allt öðruvísi en það átti að fara, maður veit aldrei hvað getur gerst og þetta var það síðasta sem mér datt í hug. að henni yrði stolið.