Hér kemur smá um tónlistarhæfileika hunds sem heitir Labbi.

Labbi er beagle hundur sem ég þekki og hann kemur oft í heimsókn. Honum finnst mjög gaman að syngja og alltaf þegar ég fer að spila á klarinettið mitt fer hann alltaf að spangóla með svo ég heyri varla í sjálfri mér. En svo þegar fólk vill að hann syngi með vill hann það alls ekki.