Jæja, eins sárt og það er þá þarf ég að gefa tíkina mína.
Hún er 10 mánaða gömul, einhver sjéffer border collie blendingur, jafnvel terrier líka, er ekki viss.

Ef að það er einhver hér sem getur tekið hana að sér þá myndi ég verða ævinlega þakklát!
Hún er alls ekki fyrir fólk með börn eða óvana :/ Hún geltir mikið því miður, ofverndar svolítið og er smá taugaspennt.

En hún er svo ljúf og elskuleg, og vill allt fyrir mann gera, og er fljót að læra flest sem ég hef kennt henni.

Ef að það er einhver sem vill taka hana, eða þá að þú veist um einhvern sem vill hana þá endilega sendu mér skilaboð eða svaraðu þessum pósti.
Mig langar ekki að láta svæfa hana, en ég er hrædd um að það endi þannig *tár*<br><br>Zallý
———————————————–