Ég er eigandinna af Max og vil ég byrja á því að þakka þeim sem hafa vottað mér samúð hér á spjallinu, sérstaklega þér Stanleys sem átti upphafið af þessu. Þetta hefur veitt mér mikinn stuðning að lesa hvað ykkur finnst og maður finnur samhugin frá ykkur. Ég var að koma frá lögreglunni rétt áðan úr skýslutöku sem sakborningur því ég hafði Max ekki í bandi. Bali er víst ekki yfirlýst hundasvæði, því miður að vita það núna, en hundaskólinn Bali var með þetta land á leigu fyrir nokkrum árum og þá máttu hundar ganga lausir sem voru í hundaskólanum Bala eingöngu. Ég spurðist fyrir um Shar-pei hundinn, og var mér tjáð að eigandi hundsins hefði gefið sig fram og hann hefði verið svæfður um morguninn sem Max fór inn á túnið hjá bóndanum en það hefði ekki verið búið að tilkynna bóndanum það.