Maður er búinn að fá upp í kok hvað varðar þessar nýju fréttir og skýrslur sem birtast manni næstum því upp á hvern einasta dag. Og ekki skánaði þetta þegar Ísland í bítið vann glæstan sigur fyrir Dalsmynni, með því að bjóða lögfr. Dalsmynnis og tveim stúlkum sem að mínu mati gerðu engum gagn, því ómögulegt var að skilja stúlkuna sem vitnaði í skýrslur og fl. Það hefur alltaf sýnt sig og sannað að öll mótmæli, og undirskriftarlistar eru það sterkasta sem hægt er að gera, þess vegna skil ég ekki afhverju fara ekki allir af stað og gera þessa hluti hið fyrsta, fólk er orðið þreytt og nennir ekki lengur að lesa um þessa hluti, það þarf að sýna samstöðu í verki, ég er tilbúinn að leggja mitt af mörkum, þetta er nefnilega ekki búið spil ef allir leggast á eitt um að fjölmenna og mótmæla kröftuglega ekki bara einu sinni heldur eins oft og þörf krefur.
Popo , the mighty one…