Ég hef átt cavalier en hún dó í vor. og ég hef mikið verið að spá hvort ég ætti eitthvað að vera að fá mér hund aftur. ég ætlaði að halda einum hvolpi eftir undan hundinum mínum en svo hætti ég við það og seldi hann. þannig að nú er ég bara að jafna mig á þessu öllu að hafa misst hundin minn sem var búin að fylgja mér í sex ár. en tímin líður og alltaf langar mér jafn mikið í annan hund en ég hef ákveðið að skoða fleiri tegundir áður en ég ákveð mig. ég sá í gær alveg yndislegan american cocker spaniel og ég var að spá hvort einhver hefði upplýsingar um svona hvernig þeir eru t.d. skap og umhirða.