Nú fékk frænka mín sér nýjan hund, en hinn er dáinn fyrir svona hálfu ári eða svo. Gamli hundurinn var vanur að liggja á gólfmottu inní stofu meðan fólkið horfði á sjónvarpið…svo gerist það að nýi hundurinn fer á þessa mottu og verður mjög órólegur. Hann skynjar eitthvað, því sá gamli var alltaf á þessari mottu. Ótrúlegt hvað þau skynja þessi grey. Hann byrjar stanslaust að væla og þau grunar hver ástæðan er.