Ég var að fá 6 vikna hvold sem er að fá tennurnar, og hann nagar allt og bítur. Hann er mest í því að ráðast á lappirnar á manni og naga þær og það er ekki hægt að klappa honum nema þegar hann er sofandi því hann bírur mann alltaf í puttana. Hann hefur lítinn áhuga á dóti sem ég keypti og nær sjaldan að dunda sér við það lengi.
Hvað get ég gert ? Er þetta venjulegt að þeir skuli vilja bíta mann þegar þeir fá tennurnar, og vex þetta þá úr þeim seinna ?