Laugavegsganga, Akureyrarganga og Suðurnesjaganga

Eins og fram kom í Sámi, fer fram árleg Laugavegsganga HRFÍ næsta laugardag þann 1. nóvmember. Lagt verður af stað kl. 13:30 frá Hlemmi.
Gangan mun setja á sig skemmtilegan svip, þar sem lögregluhundar ásamt eigendum sínum koma til með að leiða gönguna. Ásamt þeim munu stolt félagsins, ungir sýnendur vera í fararbroddi fylkingar.
Hljóðfæraleikarar hafa svo verið fengnir til að slá taktinn fyrir okkur.
En það verður ekki bara gengið á Laugavegi heldur ætla Suðurnesingar og Akureyringar að hefja göngu á sama tíma.
Svæðafélagið á Akureyri hefur göngu sína við Umferðarmiðstöðina í Hafnarstræti. Á sama tíma verður lagt af stað frá póshúsinu í Keflavík .
Við hvetjum alla þá hundeigendur sem þrífa upp eftir hunda sína til þátttöku.
Við biðjum eigendur þeirra hunda sem ekki geta verið innan um aðra hunda um að skilja þá eftir heima.
Við hundeigendur og aðrir velunnarar sem vilja taka þátt í göngunni tökum góða skapið með og gerum daginn eftirminnilegan.