Ég kaupi alltaf Nutro fóður fyrir hundinn minn (í Lukkudýrum eða Tokyo) en seinast fylgdi nú aldeilis vágestir með! Gular ílangar pöddur í 100.00000 tali. Maturinn er geymdur vel lokaður og einangraður svo að þetta hefur ekki komið frá mér,svo líka voru þær í þegar ég opnaði pokann fyrst.

Mér var sagt að ég hefði átt að frysta pokann áður en ég gæfi hundinum mínum það svo allt væri dautt í honum en ég held að maður ætlist bara fyrir 8.000 kr að pokinn sé ekki kúfullur af pöddum!

Í guðanna bænum verið á verði fyrir þessu fóðri NUTRO fyrir fullorna hunda.