Ég er í svolitlum vandræðum. Ég á nefnilega svona pulsuhund og vegna þess hve stuttfætt hún er; kemur hún alltaf heim drulluskítug á maganum og á fótunum eftir göngutúra. Ég er búin að kíkja í dýrabúðir en enginn virðist selja hlífðarföt fyrir svona langhunda. Ég sjálf er ekkert alltof klár með saumavél þannig að ef einhver veit um einhvern sem tekur að sér að sauma föt fyrir hunda þá megið þið endilega láta mig fá númerið hjá viðkomandi, svo sú stuttfætta þurfi ekki að fara í bað í hvert skipti sem hún fer í göngutúr. Hún er orðin nokkuð þreytt á því ;)
Kærar þakkir,
Lilja og Hnota