Haustsýning Hundaræktarfélags Íslands var haldin í reiðhöll Gusts, Glaðheimum, um helgina. Valið var um bestu hunda bæði í tegundum og tegundarhópum og þar að auki voru valdir bestu hvolpar, öldungar, afkvæma- og ræktunarhópar. Einnig var heiðraður þjónustuhundur ársins en það er tollhundurinn Sjarmur sem hefur fundið einna mest af fíkniefnum sem reynt hefur verið að smygla til landsins. Þá voru heiðraðir fjórir afrekshundar sem tóku þátt í rannsóknarverkefni tengdu heilabiluðum.

Besti hundur sýningar var valinn amerískur Cocker Spaniel, AMCH My-Ida-Ho N My Jems Keno, fæddur 23.10. 2000, eigandi Bára Einarsdóttir, ræktendur Emma L. Ross og Sharon Gerling.

Þetta hefur örugglega verið flott sýning, nóg af sætum og góðum hundum. Ég vona að einhver Cavalier King Charles Spaniel hundur hafi unnið eitthvað því það eru uppáhalds tegundirnar mínar.

Kveðja Birki