Vegna ábendinga félagsmanna vill stjórn Íshunda koma eftirfarandi á framfæri.
Þar sem okkur sem í stjórn Íshunda sitjum hefur verið sagt frá því að fólk sé að biðja um svör við hinum og þessum spurningum um málefni Íshunda á svokölluðum spjallrásum á netinu viljum við benda á að Íshunda munu ekki blanda sér í né svara hverjum þeim spurningum sem eru og koma til með að vera settar á þessar spjallrásir.
Hinsvegar viljum við benda fólki á sem hefir einhverjar spuringar varðandi starfsemi Íshunda að félagið mun opna skrifstofu að Fosshálsi 17-25 frá og með þriðjudeginum 16.september. Mun skrifstofan vera opin á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum milli 18-20.
Þangað eru allir þeir sem vilja fá svör við sínum spurningum hjartanlega velkomnir.

Kær kveðja
Stjórn Íshunda.



Þessu bréfi mun ekki vera svarað hér á netinu.