Ég vil að fólkið sem stendur á bak við þessa síðu gefi upp sín réttu nöfn. Í alvöru; þetta gæti verið einhver 10 ára gamall tölvunörd eða eitthvað. Þarna er verið að segja alvarlega hluti sem einhver verður að vera ábyrgur fyrir.
En ef þetta fólk hefur ekkert að fela og hefur svo mikið á móti Dalsmynni að stofna heila síðu á móti því. Af hverju þá að halda nöfunum leyndum?
Sjálf heiti ég María Gunnarsdóttir og er á móti Dalsmynni og ég myndi alveg gera svona síðu ef ég hefði kunnáttu og tíma í það. Og mér er alveg sama þótt einhver gefi mér illt auga út á götu út af þessari skoðun minni.