Þannig er mál með vexti að ég átti afmæli um daginn, og ég var alveg búin að ákveða að halda ekkert uppá það eða neitt, en vinkonur mínar hringdu í mig og sögðust vera að baka köku handa mér og að ég yrði að vera heima. Allt í lagi með það ég var heima og mér var farið að hlakka til að fá góða súkkuleðiköku. Þegar stelpurnar hins vegar mættu á svæðið þá kom í ljós að “kakan” sem þær sögðust vera með handa mér reyndist vera hundur!!! Geðveikt sætur, 5 mánaða, ég skírði hann Púka. Hann er alveg æðislegur!!!