Þessi grein er skrifuð fyrir ykkur sem vilja vita meira um þessa tegund.:)

Chihauhua er minnsta hundategund heims og vegur aðeins í kringum 2 kg. Þó hann sé lítill í stærð heldur hann sjálfur að hann sé heimsins stærsti hundur. Sagt er að hann sé stór hundur sem hafi lent í litlum búk. Tryggur, húsbóndahollur, mjög fjörugur og greindur, hann á það til að umgangast bara hunda af sömu tegund. þeir eru viðbragðsskjótir, djarfir og hugaðir. Komið hefur fyrir að fólk hafi komist upp með það að Chihuahua hundurinn þeirra fær inngöngu með þeim á hótel og aðra álíka staði, svo lítill er hann. Hann er mjög háður eiganda sínum, á verði gagnvart ókunnugum. Hárafar er mismunandi, snöggt eða loðið.

DÁLÍTIÐ UM UPPRUNAN
Uppruni Chihuahua er en dulinn. Sérfræðingar geta sér til um að litlir hundar, líkir og Chihuahua hafi komið til Ameríku með spænska hernum frá Hernando Cortes árið 1519. Önnur kenning er sú að Kínverskir sjóferðalangar hafi tekið með sér litla smáhunda til Ameríku fyrir komu þeirra til Evrópu. Tegundin var fyrst flutt til Evrópu (Bretlands) árið 1850. Chihuahua er nefndur eftir Fylki í Norður Mexíkó, þaðan frá var hann fyrst fluttur til Evrópu og síðan víða um heim.
Chihuahua tók þátt í helgisiðum í Mexíkó fyrir mörgum árum, þeir voru sagðir vera heilagir, þeim var stundum fórnað fyrir guðina.

UMHIRÐA
Snögghærður Chihuahua þarf litla sem enga feldhirðu en bursta þarf síðhærða afbrigði reglulega. Klær er klipptar eftir þörfum og fylgjast þarf með augum og tönnum, vegna tannsteinsmyndunar.

HREYFING
Chihuahua verðu heilbrigðari og ánægðari ef hann fær reglulega hreyfingu. Hann ætti að fá daglega meðallanga göngutúra. Chihuahua er viðkvæmur gagnvart kulda.

LITIR
Allir litir leyfilegir. Vinsælustu og algengustu litirnir eru ljósgulbrúnn eða brúnn, súkkuaðilitaður, ljósgulbröndóttur eða brúnn og hvítur, kremlitaður, ljósgulur og silfur, silfurgrár, svartur og brúnn og svartur.

Kv.Bjossi200
Autobots, roll out.