Mig langar að spyrja ykkur, hundaeigendur hér um eitt mál.

Þannig er mál með vexti að fyrir tveimur vikum var komið með hund til mín, sem fannst úti, ómerktur og ráfandi. Eftir miklar pælingar fórum við með hundinn á Dýralæknastofuna í Garðabæ þar sem þeir lásu á örmerkinguna og við fundum eigandann, sem kom að sækja hundinn og var mjög þakklátur. Í dag rambaði svo 1 stk hundur inn í vinnuna til mín en ég vinn í verslunarmiðstöð. Ég hringdi bara í gæsluna þar og lét þá sjá um greyið en þar var kona sem lagði til að ég myndi bara senda hann út, hann rataði ábyggilega heim. Ég gat ómögulega hent hundgreyinu út á mitt bílaplan og setið eftir og krossað putta um að hann rataði heim.

Ef að svo færi að hundurinn ykkar týndist eða styngi af, eða hvernig sem að það er, hvað munduð þið vilja að sá sem fyndi hann gerði? Ætti að hafa samband við dýralækna, lögguna, hundaeftirlitið eða eitthvað allt annað? (Ef þeir væru ómerktir)

Kveðja Fia.