Ansi þykir mér það dapurt hundalíf að mega aldrei tjá sig þeas. gelta. Hvorki varnargelti né hamingjugelti í leik. Ég er ekki viss um að eigandi þess hunds væri kátur með að fá aldrei að opna munninn og tjá sig.
Ungir hundar geta ekki verið einir í 8 klst. eða lengur. Það verður að venja hvolpa frá unga aldri að vera örstutta stund einir heima með tímanum getur hann verið einn í 5-6 klst.
Margir Beagle hundar hafa gengið á kaupum og sölum. Flest allir fyrir utan kannski 5 hunda koma frá Dalsmynni og eru því fæddir í búrum og alast upp í búrum eins og hænsni. Dapurt. Þeir eru einnig seldir þaðan á röngum forsendum. Sagan sem fylgir þeim við sölu þaðan er að þetta sé ekki erfiðir og þrjóskir hundar. Sem þeir eru. Ég er ekki að segja að þeir geti ekki verið góðir heimilishundar og skemmtilegir. En þetta eru ekki litlir sætir sófahundar eins og útlitið við fyrstu sýn gefur til kynna heldur hörku vinnuhundar.
Kveðja,
Gorsin