Sælir Hugarar.
Þetta er í fyrsta sinn sem ég fer inn á þessa síðu og mér líst bara ágætlega á. Hér er fullt af fólki sem veit margt um hunda og það er einmitt það sem mér vantar.
Málið er að ég er að leita mér að hundi og líst best á American cocker spaniel. Þannig nú leita ég til ykkar því mér vantar allar upplýsinga um þessa tegund.T.D. hvernig eru þeir með börnum? hvernig eru þeir í eðlisfari. Þurfa þeir mikla hreyfingu og þar fram eftir götonum. Nú eins langar mig að vita er sable liturinn ekki viðurkenndur litur. Ég sá einn svoleiðis um daginn og féll alveg fyrir honum. Vitið þið um einhvern sem ræktar svoleiðis lit hér á landi? Jæja segji þetta gott í bili.
Bless
Getur það verið