Útilega Til stendur að hafa útilegu í sumar fyrir hunda og eigendur þeirra. Planið er að fara eitthvert uppí sveit þar sem við getum tjaldað og leyft hundunum að leika sér saman. Einnig munum við grilla og hafa gaman af.
En til þess að komast í útileguna er algjörlega nauðsynlegt að mæta í nokkrar hundagöngur til að hundarnir nái að kynnast svo þetta endi ekki allt í háalofti.
Ekki er búið að ákveða staðsetninguna eða dagsetningu þannig að endilega látið okkur vita hvert þið mynduð vilja fara og á hvaða tíma. Einnig hvort að stemming er fyrir því að vera eina eða tvær nætur.
Upplýsingar og skránig eru á hvuttar@hvuttar.net
Gott er að senda e-mail sem fyrst og láta vita af sér, þá sendum við ykkur e-mail í hvert skifti sem eitthvað nýtt kemur fram.

Hlökkum til að sjá ykkur

Hvuttar og hugahunda