Nú ætlum við að breyta svolítið til og færa hundagönguna uppá esjuna að þessu sinni.
Ákveðið er að hittast við rætur Esjunar á sunnudeginum 23.Júní 02 kl 19:00
Takið endilega með ykkur nesti, því í þessari göngu verðum við mannfólkið að hreyfa okkur líka ;)
Ekki er víst hvort við meikum alla leið uppá topp en við munum bara sjá hvernig veðrið verður sem og andinn í hópnum.
Það er alveg nauðsynlegt að þrífa upp eftir sig svo okkur verði nú ekki meinaður aðgangur þangað.

Þeir sem hafa áhuga á að mæta eru vinsamlegast beðnir um að senda meil á hvuttar@hvuttar.net og staðfesta komu sína, því ef eitthvað breytist þá viljum við geta haft samband til að láta ykkur vita. Og líka svo við getum beðið eftir þeim sem ekki eru komnir.

Takið því fram gönguskóna og hittumst hress við Esjuna :)