Saran mín Það gengur allt súper vel hjá okkur. Við erum byrjaðar á hvolpanámskeiði, erum reyndar bara búnar að mæta í einn tíma en sá næsti er í næstu viku :)
Ég er búin að kenna Söru að setjast, leggjast, gjöra svo vel og heilsa! :)
Svo fær hún að koma með mér í vinnuna :) Og eiginlega bara flest sem ég fer. Enda er hún ansi háð mér og þó ég segi sjálf frá, þá sér hún ekki sólina fyrir mér! *egó*
Erum bara duglegar að fara út að labba og svona, hitta aðra hunda og gera allt mögulegt.
Það er allavega ekki hægt að segja að ég svelti hana þar sem hún er orðin soddan bolla og er orðin 1,7 kíló!
Annars var ég nú að klippa í kringum eyrun á henni í gær þannig að nú sést að hún er með eyru og er orðin aðeins líkari hundi :) Svo er líka alltof heitt úti til þess að vera með svona loðin eyru! úff