Jæja við erum orðin svo aktív hérna að við ætlum að fara að hafa göngurnar mjög reglulega. Bara annan hvern miðvikudag klukkan 19:30 uppað Rauðavatni. Ef þið hafið eitthverja uppástungur um tíma eða stað sem hentar ykkur betur þá endilega látið mig eða bjornjul vita.
En þar sem 1. Maí er núna á miðvikudaginn ætlum við að fresta göngunni um einn dag og hafa hana á Fimmtudeginum 2.Maí kl 19:30 uppá Rauðavatni.
Vonumst til að sjá flesta!

Og já það er að koma í gang heimasíða fyrir gönguna með myndunum og öllu tilheyrandi :)