Kæru hundavinir.

Ef þið eigið eitthvað “hundadót” sem þið notið
ekki lengur eða sem þið viljið losa ykkur við, þá vantar
Dýrahótelið í Víðidal sárlega alls kyns hluti. Þau þiggja
teppi, matardalla, körfur og það sem hugsast getur
að gæti nýst fyrir hundana. FHH hýsir hundana á
Dýrahótelinu í Víðidal og því miður kemur það fyrir
að við tökum við hundum sem eiga ekki neitt. Þeir sem vilja losa sig við eitthvað gamalt, geta haft samband við Guðrúnu eða Petru í síma 567-4020/899-2067.

Þetta fann ég á síðu félags heimilislasura dýra, aumingjarnir allslausir, ef þið eigið auka dalla, dót eða eitthvað endilega leggið munaðarlausu hundunum lið :)