Hokkaido Þessi grein er fyrir CrackerJack. Næst á dagskrá er svo Bull Mastiff fyrir Gozy og svo ætla ég að gera eina grein um hunda sem eru bannaðir á Íslandi fyrir Kornelius. Ef þið hafið fleiri óskir um hundategundir eða aðrar hugmyndir af greinum skulið þið bara skrifa álit eða senda mér skilaboð. Þessi grein er örlítið styttri en vanalega vegna þess að ég fann ekki það miklar upplýsingar um þennan hund en ég þýddi þetta yfir á Íslensku svo ég vona að þetta sé rétt.

Útlit og líkamsbygging

Þessi hundur er meðalstór og hefur þríhyrningslaga upprétt eyru. Hann hefur lítil skásett augu. Hann hefur feld af löngu, stífu hári og styttri, mjúkari feld yfir. Leyfilegir litir eru rauður, svartur, tiger, sesame, og úlfagrár. Karldýrið er yfirleitt 50 cm há, og kvendýrið nokkrum sentímetrum styttri. Hundurinn er um 20 kg. Lífslíkur hundsins eru um 15 ár.

Eiginleikar

Hann er frægur fyrir mikið traust til eiganda síns, hugrekki og hann þolir einnig vel kulda. Hann er langt frá því að vera áttavilltur og getur komið aftur til eiganda síns úr mjög mikilli fjarlægð. Hann hefur ótrúlega hæfileika í því að berjast við birni til þess að verja eiganda sinn. Hann skýst upp um bak bjarnarins og bítur í hálsinn á birninum af fullum krafti þangað til að björninn gefst upp. Hann hefur mikla reynslu sem gæludýr og sem veiðihundur. Hann ætti ekki að ganga laus meðal annarra dýra. Hann er barngóður ef hann hefur alist upp með börnum allt frá æsku. Hann er ekki ætlaður í borgarlíf og stórt landsvæði hentar honum best.

Aðeins um sögu Hokkaido

Hokkaido er ættaður frá Japan og fékk tegundin nafn sitt árið 1869. Tegundin var mjög nothæf við að leita af fólki úr hernum þegar þeir nánast snjóuðu í hel árið 1903.

Heimildir

http://en.wikipedia.org/wiki/Hokkaido_dog
Lifðu lífinu með ró, þú kemst hvort eð er ekki lifandi frá því :D