Jæja, nú er ég búin að pakka jólagjöf hundsins (hennar=tík) og það er tístudót.
Ég gerði mistök með því að láta tísta í dótinu þegar ég var búin að pakka því inn, því nú sér hún ekkert nema þennan pakka og lítur ekki við því dóti sem hún á.
Þetta gerir hana ennþá spenntari fyrir jólin…er ekki líka eitthvað jákvætt við það? :)
Læt hana alltaf opna pakkann sjálf því hún er orðin mjög fljót að opna pakka af spenningi!!!

Gleðileg hundajól VOFF VOFF VOFF