Er í skóla úti á landi og er komin til Rvíkur í jólafrí. Ég saknaði þess rosalega mikið að KNÚSA hundinn/tíkina mína UPP TIL AGNA!!!! Ég dýrka það hvað dýrin, sérstaklega hundarnir, taka vel og einlæglega á móti manni. Hún vældi svo mikið af ánægju og skottið hætti ekki að dilla ÞVÍLÍKUR FÖGNUÐUR og vááá hvað hún vældi mikið og hátt. Ég dýrka litlu dúlluna mína!!!!!!! Rosalega saknaði ég hennar!!!!!!!
Hafa hundar tímaskyn eða ekki? Sumir segja að þeir hafi það ekki, en ég held að þeir hafi það því vælið var mjög mikið eftir langa fjarveru mína. Nú er ég að bæta greyinu þetta upp með því að eyða miklum tíma með henni…HÚN ER SVO MJÚÚÚK!!!!!!!!!!!!!!!