Jæja það kom af því, tíkin mín er orðin kynþroska og það byrjaði að blæða hjá henni í dag.
Þetta er fyrsta tíkin sem ég á og því kann ég ekkert á þessi mál og finn ekkert um þetta á netinu, er ekki einhver hér sem getur sagt mér hvað þetta blæðingatímabil stendur yfir lengi, hvað ég þarf að gera eða passa á meðan á því stendur og ef þið vitið um einhverjar síður með upplýsingar um þessi mál.

Ef ég set hana á einhverja getnaðarvörn þegar þetta er búið gerist þetta þá ekki aftur eða hvernig virkar þetta á hundum ??

Öll hjálp er svakalega vel þegin.

Kv. EstHe
Kv. EstHer