Já það vill nú svo til að ég var að klára að lesa þessa grein um það að hundur hafi verið skilin eftir í eigin blóði.

Og hef ég nú smá sögu að segja sem er svona nokkurnvegin eins :S

Já ég bý í Danmörku í Árósum, og í árósum eru mikið af svona “gengjum” þar sem að 17-25 ára strákar hittast og leika algera “gangstera” og þar sem að ég bý er akkurat eitt slíkt sem heitir Trillegårdsbanden og eru þeir nú taldir vera dáldið grófir við fólk, og nú eru þeir líka farnir að vera með hunda. Nýjasta nýtt er s.s að þeir séu farnir að labba um hverfið með Bulldog hunda í ól með sér. Og til að segja sannleikan verð ég nú stundum bara skíthrædd þegar þér koma 10 saman með 4 hunda :S

En til að koma mér að málinu þá vildi það til að ég var að ná í systkini mín einn dagin úr skólanum, og hinum megin við götuna hjá skólanum er stór fótboltavöllur.
Þar sé ég Trillegårdsbanden með sína hunda að rífast við eitthvert annað gengi veit ekki sjálf hvaða gengi það var, en það gengi var líka með hunda.
Ég labba áfram og sé þar að þeir eru að sættast en vilja láta hundana sína slást, þannig að þér velja besta hundin sinn og slagurinn byrjar.
Þessi slagsmál voru hreint út sagt ógeðfelld blóð og allt og þessir drengir stóðu bara þarna og horfðu á og öskruðu á sinn hund.
Á endanum var hundurin hjá Trillegårdsbanden orðin vel særður þannig að þeir stoppuðu slagsmálin og gengið sem ”vann” fór.
Strákarnir úr Trillegårdsbanden stóðu þarna enþá og huguðu að hundinum en svo allt í einu sé ég þá labba í burtu og einn þeirra var á svona Scooteri/Vespu.
Sá sem átti hjólið var greinilega eigandi hundsins líka. En í stað þess að fara með hundin til Dýralæknis og láta svæfa hann eða kannski var hægt að bjarga honum, þá sest hann uppá hjólið kveikir á mótorinum og keyrir yfir hundin! Svo keyrir hann í burtu.
Ég stóð þarna alveg ótrúlega hissa og í sjokki, en ég gat ekkert gert.
Eftir það sá ég að það kom eitthver maður inná völlin og hringdi í lögregluna sem kom stuttu seinna. Ekki veit ég hvað gerðist við hundin eftir það en sennilega var honum lógað.
Þetta var það ógeðslegasta sem ég hef nokkurtíman séð.
Ég skil ekki hvernig fólk getur gert svona. Það að keyra yfir sinn eigin hund og keyra svo bara í burtu er ógeðslegt.