Mömmu mína dreymdi síðustu nótt að hundurinn okkar (8 ára tíkin) hefði grátbeðið mömmu um að láta svæfa sig…að hún væri komin með nóg af lífinu…daginn eftir (við vorum í sumó og þurftum að geyma hakkið…tilvonandi kvöldmat, úti, því það var ekkert rafmagn í bústaðnum) þegar við vorum búin að veiða og komum til baka, var greyið litla búið að borða hrátt hakkið sem átti að vera í kvöldmat. Ég var svo viss um að pabbi væri búinn að gefa henni hundamat en þetta fannst henni mjög freistandi. Við blönduðum allskonar matarkyns saman í pott og úr því varð bara ennþá betri réttur en hakkið hefði verið. Mér fannst þetta sætt, þó ég hefði ekki sagt hinum að mér þætt það sætt ;) Tíkin var með slæman vindgang allt kvöldið og þurfti því að vera úti svolitla stund á meðan hún var að melta þetta.